já gott á fólk, ég sit hér á bókasafninu að berjast við það að læra. Get ekki sagt það að einbeitingin hjá mér sé í Maxi, getur verið af því að ég var mætt klukkan 8 í morgun. Mánudagar eru ótrúlega fínir dagar upp á það að það er engin tími fyrir hádegi og getur maður náð að komast yfir smá efni áður en að skóladagurinn hefst. En undanfarnir dagar hafa aldeilis verið fjölbreyttir. Á miðvikudagin fórum við krakkarnir á djammið í tilefni af því að það var vetrafrí fimmtudag og föstudag. Eftir góða upphitun heima hjá Svenna var ferðinni heitið á Club Cool þar sem að ég, Gylfi og Ragnheiður vorum til lokunar, þetta er fyrsta sinn sem að ég er á skemtistað til lokunar. sporvagninn var meira að segja farin að ganga.
Fimmtudagurinn fór svo að sjálfsögðu í tilheyrandi þynnku og sjónvarpsgláp.
Eldsnemma á föstudagsmorgnunin, réttara sagt klukkan 6 um morgunin vorum við svo vöknuð til að ná 7 lestinni til Búdapest. Ég, Ragnheiður, Gylfi, Anna María og Kári mættum öll hress en lentum í mismunandi vögnum. Ég og Gylfi vorum saman og ætluðum að reyna að nota tímann til þess að lesa eðlisfræði. Þið getið rétt ýmindað ykkur hvað það gekk vel klukkan 7 um morgunin og að sjálfsögðu fór ég bara að dotta. Þið vitið þegar að maður sefur sitjandi þá fer höfuðið alltaf að detta fram og þá hrekkur maður upp, í hvert sinn sem að það gerðist vaknaði ég og var þá ekki einhver gaur alltaf að horfa á mig. Þessi creepy gaur starði á mig og Gylfa til skiptis í 2,5 klst. Ég var frekar fegin að fara úr lestinni þegar að við komum svo til Búda. Ég og Ragnheiður höfðum bara eitt mission í þessari ferð og það var að versla í H&M. Við byrjuðum fyrst á því að fylgja Önnu í litun og klippingu i Tony&Guy og drifum okkur svo í H&M leit, það gekk reyndar ekki allveg nógu vel, ég var búin að finna götuheitið á netinu Váci u. Vissi ekki að það eru til 2 Váci í Búdapest, önnur Váci utca, hin Váci u. En a endanum fundum við hana eftir að ég spurði bara einhverja gellu í neðanjarðarlestinni hvort að hún vissi ekki hvar H&M væri. Það sem að maður gerir ekki fyrir smá shopping.
Strákarnir nentu nú ekki að hanga þar þannig að þeir fóru bara á röltið.
Við hittumst svo öll á Iguana og borðuðum svínarif sem að Gylfi var búin að bíða eftir í 2 mánuði en stóðust ekki undir væntingum, þið getið kíkt á myndir af matnum á myndasíðunni, mér fannst þau fín og borðaði lang mest af öllum

Svo endaði ferðin á því að við gylfi og ragnheiður tókum síðustu lestina heim, hinir voru eftir og ætluðu að partíast. Þegar að við komum í lestina, örþreytt eftir dagin, hver situr ekki við hliðiná okkur, engin annar en creepy gaurin. og að sjálfsögðu hlustaði hann á samtal okkar við sænska stelpu(hún er á 1. ári) með mikilli athygli, ég naði meira að segja mynd af honum, það er gaurinn í appelsínu gulupeysunni í lestinni.
En ég ætla að drífa mig í að læra meira, kem heim algerlega steikt af lærdóm. nei nei engar áhyggjur það er nóg af hlutum sem að dreifa athygli manns, eins og rétt í þessu var verið að sprengja eitthvað hér rétt hjá og dúuðu öll glerin í byggingunni sem ég er í og næstu ( þetta eru 2 risa glerbyggingar hlið við hlið) get ekki neitað því að maður var annsi hræddur, fékk smá svona "shit, er þetta terrorist sprenging" já maður er orðin rosalega heilaþvegin, vitum samt ekkert hvað þetta var, mögulega bara verið að sprenga fyrir grunni á húsi.
En í bili bið ég að heilsa ykkur.